Forspárþættir um ánægju / óánægju með íslenskunám og málakunnáttu meðal fullorðinna innflytjenda á Íslandi
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.33112/millimala.15.2.5Lykilorð:
tungumálanám, innflytjendur, inngilding innflytjenda, íslenska, ánægja með tungumálanámskeiðÚtdráttur
Að tileinka sér tungumálið er oft álitinn mikilvægur þáttur í inngildingu innflytjenda að nýju samfélagi. Könnuð var íslenskukunnátta og ánægja með tungumálanámskeið meðal innflytjenda á Íslandi og byggt á gögnum (N=2.139) sem safnað var árið 2018. Tvíliðaaðhvarfsgreining sýnir að kunnátta í íslensku helst í hendur við jákvæð félagsleg samskipti við Íslendinga (z=7.028, p=0) en ekki tekjur. Niðurstöður eru að hluta til í samræmi við niðurstöður í öðrum löndum: Útsetning fyrir tungumálinu (lengd dvalar á Íslandi: z=12.436, p=0; notkunartíðni íslensku: z=-12.418, p=0) og ástundun (aldur: z=4.003, p=0; menntun: z=4.044, p=0) eru viðeigandi forspár um tungumálakunnáttu á Íslandi. Enn fremur er greint frá því að innflytjendur á Íslandi séu fremur óánægðir með íslenskunámskeið, því mat þeirra er að námskeið sem í boði eru taki ekki tekið mið af íslenskukunnáttu þeirra á hverjum tíma
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Lara W. Hoffmann, Yvonne Höller, Markus Meckl

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).