Blæðandi hjörtu, tregi og tár í verkum Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo

Myndlist sem uppgjör og heilun

Höfundar

  • Æsa Sigurjónsdóttir

Lykilorð:

Inngilding, samtímalist, tvístrun, trúarhefðir, Filippseyingar, hiya, feðraveldi, heilun

Útdráttur

Í greininni er fjallað um listsköpun Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo, tveggja íslenskra listamanna af filippseyskum uppruna. Greining á verkum þeirra sýnir hvernig list-sköpun þeirra þjónar sem vettvangur fyrir flókið uppgjör við trúarlegan bakgrunn, menn-ingarlega sjálfsmynd og persónuleg áföll. Hugtakið tvístrun (e. diaspora) er miðlægt í umfjöll-uninni, því að það varpar ljósi á áföll og tilfinningaóreiðu sem oft einkennir líf fólks sem býr á milli ólíkra menningarheima. Höfundur útskýrir hvernig listsköpunin litast af gagnrýni á viðtekin gildi innan filippseyskra hefða, sérstaklega siðferðilega hegðun sem byggist á hug-takinu hiya (skömm eða auðmýkt). Þessi menningarlegi bakgrunnur skapar spennu milli kyn-slóða, þar sem yngri kynslóðin berst fyrir kynja- og kynfrelsi innan innflytjendasamfélagsins. Í verkum Dýrfinnu er dregin upp djúp táknfræði tengd sári hins upprisna Jesú, sem táknar bæði staðfestingu á þjáningu og fyrirheit um sigur yfir dauðanum. Hún notar einnig mynd-mál úr dægurmenningu, svo sem manga og filippseyskar komiks, til að afhelga og endurtúlka trúartákn. Þessi blanda af trúarlegri alvöru og fagurfræði dægurmenningar endurspeglar flókna sjálfsmynd listamannsins.
Sýningin Í gegnum súrt og sætt í Nýlistasafninu markar hápunkt í samstarfi þeirra Melanie og Dýrfinnu. Þar er fjallað um ást, fíkn og sorg á berorðan hátt. Þær lýsa verkunum á sýningunni sem „fórnargjöfum úr rústunum“ og sköpunarferlinu sem eins konar sameiginlegri heilun. Niðurstaða greinarinnar er að verk þeirra búi yfir mun meiri dýpt en einföld táknfræði gefur til kynna; þau eru pólitískt og tilvistarlegt uppgjör sem á sér sterkan samhljóm í íslenskum samtíma þar sem listasöfn virkja ýmsa möguleika til inngildingar

Um höfund (biography)

  • Æsa Sigurjónsdóttir

    Prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Útgefið

2026-05-27