Hvernig gengur leikskólakennurum og grunnskólakennurum að samræma vinnu og einkalíf?

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.4

Lykilorð:

l0ngun til að hætta í starfi, samspil vinnu og einkalífs, starfsánægja, starfskröfur, vinnutími

Útdráttur

Almenn vellíðan fylgir því að ráða við daglegar áskoranir í lífinu, svo sem að geta haldið jafnvægi milli þeirra ólíku hlutverka sem við gegnum daglega. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig leikskólakennurum og grunnskólakennurum gengi að samræma vinnu og einkalíf og skoða tengsl þess við starfsánægju, löngun til að hætta í starfi, starfskröfur og yfirvinnu. Rafrænn spurningalisti var lagður fimm sinnum fyrir grunnskólakennara og leikskólakennara á árunum 2010–2019. Svarhlutfall var á bilinu 62–72%. Niðurstöðurnar sýna að leikskólakennurum og grunnskólakennurum gekk verr að samræma vinnu og einkalíf seinni árin en hin fyrri. Einnig sýna niðurstöðurnar að þeir sem náðu betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs upplifðu meiri starfsánægju, höfðu minni löngun til að hætta í starfi, upplifðu minna álag í starfi og töldu sig þurfa sjaldnar að vinna aukavinnu. Mikilvægt er að hafa þetta í huga við að skapa leikskólakennurum og grunnskólakennurum gott starfsumhverfi.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biography)

  • Hjördís Sigursteinsdóttir, Háskólinn á Akureyri - Viðskiptadeild
    Hjördís Sigursteinsdóttir (hjordis@unak.is) er dósent í stjórnun við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Hún lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands, MA-prófi í félagsfræði frá sama skóla 2008 og BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri 1997. Hennar helstu áherslur í rannsóknum og kennslu lúta að stjórnun og stjórnunarháttum og heilsu og vellíðan á vinnustað.

Niðurhal

Útgefið

2022-08-04