Kristín Jónsdóttir: "Hlustaðu á þína innri rödd" - Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987
DOI:
Abstract
Sérstök kvennaframboð eru ekki séríslensk leið í stjórnmálum en saga íslensku kvennaframboðanna er sérstök að því leyti að hún er yfirgripsmeiri og árangursríkari en í flestum öðrum löndum. Með bókinni "Hlustaðu á þína innri rödd" um Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalista 1982-1987 hefur mikilvægur hluti íslenskrar stjórnmálasögu verið settur á blað. Sú saga fjallar ekki bara framboðshreyfingu kvenna, hún fjallar um pólitíska hugmyndafræði og aðferðir, vinnubrögð, grundvallarhugmyndir um lýðræði og pólitískt siðferði. Móttökur samfélagsins, flokkanna og fjölmiðlanna segja merkilega sögu um íslensk stjórnmál, hvað taldist "alvörupólitík" og hvað ekki. Allt framangreint verðskuldar sérstaka umfjöllun en hér verður einungis stiklað á stóru.Downloads
Published
2007-12-15
Issue
Section
Book Reviews
License

This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.