Stjórnlagaþing, fjölmiðlar og frambjóðendur. Rannsókn á kynningarmálum frambjóðenda fyrir stjórnlagaþingskosningar 2010
##doi.readerDisplayName##:
Útdráttur
Hefðbundnir fjölmiðlar voru ekki í aðalhlutverki við kynningu og umfjöllun um einstaka frambjóðendur í kosningunum til stjórnlagaþings í nóvember 2010. Persónukjör með landið sem eitt kjördæmi þar sem yfir 500 frambjóðendur voru í kjöri er fyrirkomulag sem ekki hentar verklagi og vinnubrögðum hefðbundinna miðla og því er lýðræðislegt hlutverk þeirra takmarkað að þessu leyti. Í greininni er greint frá niðurstöðum könnunar meðal frambjóðenda til þingsins á því hvernig þeir höguðu kynningarmálum sínum og kemur í ljós að netmiðlar voru í aðalhlutverki, sérstaklega samfélagsvefurinn Facebook og miðlar sem ekki teljast til stóru hefðbundnu miðlanna. Í gegnum þessa miðla reyndu frambjóðendur að koma sér og stefnumálum sínum á framfæri inn í almannarými þjóðfélagsumræðunnar. Lítil sem engin tilraun var gerð meðal frambjóðenda til að kaupa sér leið inn í almannarýmið með auglýsingum.Niðurhal
Útgefið
15.12.2010
Tölublað
Kafli
Erindi og greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.