Guðni Th. Jóhannesson: Óvinir ríkisins: Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi
##doi.readerDisplayName##:
Útdráttur
Áhugamenn um sögu kalda stríðsins á Íslandi hafa fengið nóg að lesa á árinu 2006. Umræður og deilur um njósnir og hleranir á þessum viðsjárverðu tímum í Íslandssögunni hafa skipað háan sess í fjölmiðlum, fyrst eftir að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur opinberaði í maí að íslenzk stjórnvöld hefðu sex sinnum fengið heimild til að hlera síma sósíalista í kalda stríðinu, síðan í framhaldi af því að Þór Whitehead sagnfræðiprófessor birti í tímaritinu Þjóðmálum ritgerð sína um leynilega öryggisþjónustudeild lögreglunnar í Reykjavík, sem m.a. hélt spjaldskrá yfir kommúnista og fylgismenn þeirra. Umræðurnar um þessi mál bera því glöggt vitni að ekki er enn kulnað í glæðum kalda stríðsins og bergmál umræðna á tímum kalda stríðsins má jafnframt heyra í umræðum um öryggis- og varnarmál Ísland, þótt allar aðstæður séu gjörbreyttar.Niðurhal
Útgefið
15.12.2006
Tölublað
Kafli
Bókadómar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.