Netsamskipti milli HÍ og UB: samskipti og samræður í tungumálanámi
Lykilorð:
rafræn samskipti, viðbrögð nemenda, tungumálahæfniÚtdráttur
Í þessari grein verður kynnt námskeiðið SPÆ267G Talþjálfun II: Fjölmiðlar og hversdagsmenning sem kennt er í fjarnámi milli Íslendinga í spænskunámi við Háskóla Íslands og nemenda við Háskólann í Barcelona (sp. Universidad de Barcelona) sem eru að ljúka meistaragráðu sem spænskukennarar. Námskeiðið var kennt á vormisseri 2019. Gerð verður grein fyrir æfingahönnun og námsmati í fjarnámsverkefninu sem byggist á mismunandi samskiptaæfingum í gegnum
fjarfundabúnað, Whatsapp og Flipgrid. Kannað er með eigindlegum annsóknaraðferðum hvaða áhrif þessar aðferðir höfðu á tungumálafærni nemenda og hver viðbrögð þeirra og viðhorf til verkefnisins voru.
Niðurhal
Útgefið
2020-09-30
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Hvernig skal vitna í
Netsamskipti milli HÍ og UB: samskipti og samræður í tungumálanámi. (2020). Milli Mála, 11(1). https://www.ejournals.is/index.php/millimala/article/view/3227