Sjálfsmynd og villimenn Ny?ja heimsins í skrifum Michels de Montaigne.
Útdráttur
Ly?singar á skrælingjum Ny?ja heimsins höfðu mikil áhrif á Evrópubúa, ekki síst sögur af mannáti. Einn þeirra endurreisnarmanna sem skrifuðu um íbúa Ny?ja heimsins var Frakkinn Michel de Montaigne (1533–1592) sem er þekktastur fyrir rit sit Essais eða Tilraunir. Þar dregur höfundur upp mynd af sjálfum sér með því að beina sjónum sínum og dómgreind að ólíkustu viðfangsefnum. Í esseyjunni „Um mannætur“ („Des cannibales“) gagnry?nir Montaigne grimmd samlanda sinna í þeim trúardeilum, sem settu svip sinn á síðari hluta 16. aldar í Frakklandi og ly?sir því yfir að Evrópumenn standi íbúum Ny?ja heimsins framar í allri villimennsku. Hér er greint frá esseyjuformi Montaignes og sagt frá því hvernig sjálfsmynd og sy?n á „hinn“ fléttast saman í umfjöllun hans um mannætur Ny?ja heimsins.
Lykilorð: Michel de Montaigne, „Um mannætur“, esseyja, Ny?i heimurinn, sjálfsmynd
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2015 Ásdís R. Magnúsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).