Fréttir í þremur línum

Authors

  • Félix Fénéon
  • Ásdís Rósa Magnúsdóttir University of Iceland - School of Humanities

DOI:

https://doi.org/10.33112/millimala.16.1.19

Abstract

Félix Fénéon (1861–1944) var franskur blaðamaður og listagagnrýnandi sem er meðal annars þekktur fyrir þátttöku sína í hreyfingu anarkista. Hann birti greinar í ýmsum dagblöðum og tímaritum. Árið 1906 skrifaði hann um nokkurra mánaða skeið, frá maí til nóvember, örstuttar fréttatilkynningar sem birtust í dálkinum „Fréttir í þremur línum“ (Nouvelles en trois lignes) í franska dagblaðinu Le Matin, gjarnan á forsíðunni. Þarna var einungis að finna stuttar fréttir, að hámarki þrjár línur, og 110 til 150 slög (án bila). Við ritun þeirra brá Fénéon á leik með fagurfræði hins knappa og nákvæma í meira en 1200 þriggja lína fréttabrotum. Hér má lesa fréttir hans frá París og landsbyggðinni, á forsíðu Le Matin, 7. júní 1906.

Author Biography

  • Ásdís Rósa Magnúsdóttir, University of Iceland - School of Humanities

    Ásdís Rósa Magnúsdóttir (f. 1964) lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum miðalda og endurreisnar frá Université Stendhal - Grenoble 3 árið 1997. Hún gegnir nú starfi prófessors í frönsku máli og bókmenntum við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Published

2025-03-27

How to Cite