„Svo taka þau ákvörðun seinna“
Val foreldra tengt skírn og nafngjöf ungbarna
Keywords:
skírn, foreldrar, trú og trúleysi, hefðir, trúarlegt sjálfstæðiAbstract
Greinin fjallar um afstöðu foreldra til skírnar ungra barna á Íslandi og þau sjónarmið sem liggja að baki því að velja skírn eða hafna henni. Rannsóknin er byggð á eigindlegum við-tölum við foreldra sem ýmist hafa látið skíra börn sín eða valið aðra athöfn í tengslum við nafngjöf. Greint er frá því hvernig trúarlegar hugmyndir, hefðir, fjölskyldu- og vinatengsl, sem og skilningur á trú og trúfrelsi, koma við sögu í ákvörðunarferlinu. Greiningin er sett í samhengi við norrænar rannsóknir sem sýna sambærilegar breytingar á viðhorfum til skírnar, þar sem hefð, trúarleg sjálfsmynd og einstaklingsbundin sannfæring takast á. Áberandi er áhersla foreldra á sjálfræði barnsins og hugmyndina um að barnið eigi síðar að taka afstöðu sjálft. Greinin varpar ljósi á breytingar í trúarlegum viðhorfum í samtímanum og hvernig tengsl trúar, hefðar og samfélags móta ákvarðanir foreldra í íslensku samhengi.