Gamlir draumar eða umbreytandi menntun
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.4Lykilorð:
draumar, umbreytandi menntun, grænn vöxturÚtdráttur
Þessi grein er ákall um breytta sýn á inntak og markmið menntunar. Færð eru rök fyrir því að andspænis þeim hnattrænu ógnum sem við blasa – loftslagsbreytingum, stríðum, aukinni misskiptingu og gervigreind sem þrengir að mennskunni – sé stærsta áskorun menntakerfa Vesturlanda að hjálpa fólki að eiga sér nýja drauma. Fjallað er um hvernig draumurinn um að drottna yfir náttúrunni hafi verið stöðugur um aldir þrátt fyrir að samfélög hafi tekið miklum breytingum og bent á að sjálfbær framtíð verði einungis að veruleika ef nýjum hugmyndum um hið góða líf verður unnið brautargengi; ef nýir draumar um að finna samhljóm með náttúrunni og finna til samkenndar með öðru fólki verða hreyfiafl einstaklinga og samfélaga. Til að það geti orðið að veruleika er ekki nóg að mennta hugann og höndina, heldur þarf menntun sem umbreytir hjartanu svo fólk læri að elska landið og hafa stjórn á eigin löngunum.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Ólafur Páll Jónsson

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.