Sýn leikskólabarna á þátttöku í ærslaleik

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.7

Lykilorð:

ærslaleikur, leikskóli, sjónarmið barna, bernskurannsóknir, etnógrafía, áhættuleikur

Útdráttur

Ærslaleikur er félagsleg tegund áhættuleiks sem felur í sér spennu, líkamlega áskorun og óvissu. Rannsóknir benda til mikilvægis hans í þroska barna, en hann er þó oft bannaður vegna hávaða og hættu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu barna af þátttöku í ærslaleik. Myndbandsupptökur af leik barna voru notaðar sem kveikja að samtölum við þau. Niðurstöður sýndu að börnin nutu leiksins, þó mismikið. Þau settu mörk í leiknum og voru oft meðvituð um hvenær farið var yfir þau. Þá breyttist upplifun þeirra; leikurinn hætti að vera skemmtilegur og snerist upp í leiðindi. Þá sömdu þau reglur með stuðningi kennara til þess að viðhalda leiknum og forðast leiðindi. Gildi rannsóknarinnar felst í því að sjónarmið barna fengu að heyrast og sýnt er fram á mikilvægi þess að kennarar gefi sér tíma til að fylgjast með leik, ræða hann við börnin og aðstoða þau við að ígrunda samskipti sín.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Atli Sævar Ágústsson

    Atli Sævar Ágústsson (atli.saevar.agustsson@reykjavik.is) er leikskólakennari sem starfar við leikskólann Drafnarstein í Reykjavík. Hann útskrifaðist með M.Ed.-gráðu í Menntunarfræði leikskóla í júní 2025. Hann lauk bakkalárnámi í Heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði árið 2017. Atli hefur reynslu af flestum hlutverkum leikskólans. Hann hefur lagt áherslu á sjálfstæði barna og jákvæð samskipti í leik. Ærslaleikur barna hefur lengi verið honum hugleikinn og því varð hann fyrir valinu sem rannsóknarefni lokaverkefnisins í menntunarfræði.

  • Sara Margrét Ólafsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Sara Margrét Ólafsdóttir (saraola@hi.is) er dósent í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þar sem hún hefur jafnframt umsjón með námsleiðinni leikskólakennarafræði. Hún er auk þess forstöðumaður RannUng, Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna. Sara Margrét hefur tekið þátt í bæði innlendu og erlendu rannsóknarsamstarfi og sinnir einnig verkefnum við Háskólann í Færeyjum. Megináherslur í rannsóknum hennar hafa verið sjónarmið barna á hinum ýmsu sviðum, m.a. hvað varðar leik, skil milli leik- og grunnskóla, vellíðan barna, réttindi barna og fullgildi.

Niðurhal

Útgefið

2026-06-24