Björgvin G. Sigurðsson: Stormurinn - reynslusaga ráðherra
DOI:
Abstract
Björgvin G. Sigurðsson átti undir högg að sækja sem viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, a.m.k. ef marka má þá staðreynd að það var aðeins seint og um síðir sem hann var kallaður að borðinu helgina örlagaríku þegar ríkið tók Glitni yfir, í september 2008. Sjálfur vill Björgvin meina að margt gott hafi verið gert í ráðherratíð hans og hann telur fjarri lagi að eðlilegt hefði verið að vísa máli hans fyrir Landsdóm, þar sem hann hefði þurft að svara ákæru um vanrækslu í starfi. Björgvin slapp raunar við þau örlög, þegar Alþingi greiddi atkvæði þar um nú í haust, og bók hans Stormurinn markar viðleitni hans til að minna á sig, í pólitísku tilliti. Því fer hins vegar fjarri að bók hans risti nógu djúpt til að geta talist skyldulesning.Downloads
Published
2010-12-15
Issue
Section
Book Reviews
License

This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.