Björgvin G. Sigurðsson: Stormurinn - reynslusaga ráðherra

Höfundar

  • Davíð Logi Sigurðsson

##doi.readerDisplayName##:

Útdráttur

Björgvin G. Sigurðsson átti undir högg að sækja sem viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, a.m.k. ef marka má þá staðreynd að það var aðeins seint og um síðir sem hann var kallaður að borðinu helgina örlagaríku þegar ríkið tók Glitni yfir, í september 2008. Sjálfur vill Björgvin meina að margt gott hafi verið gert í ráðherratíð hans og hann telur fjarri lagi að eðlilegt hefði verið að vísa máli hans fyrir Landsdóm, þar sem hann hefði þurft að svara ákæru um vanrækslu í starfi. Björgvin slapp raunar við þau örlög, þegar Alþingi greiddi atkvæði þar um nú í haust, og bók hans Stormurinn markar viðleitni hans til að minna á sig, í pólitísku tilliti. Því fer hins vegar fjarri að bók hans risti nógu djúpt til að geta talist skyldulesning.

Um höfund (biography)

  • Davíð Logi Sigurðsson
    Sagnfræðingur.

Niðurhal

Útgefið

15.12.2010

Tölublað

Kafli

Bókadómar