Sjálfbær landbúnaðarframleiðsla á Íslandi – Innantóm eða áhrifarík stefna?

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2026.22.1.6

Lykilorð:

Stefnumótun, Opinber stjórnsýsla, Sjálfbærni, Skipulagsáætlanir, Landsbúnaður

Útdráttur

Í greininni er fjallað um sjálfbærni, stefnumótun og stjórnsýslu á sviði landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Stefnur um bæði sjálfbæra landnotkun og matvælaframleiðslu hafa lengi verið við lýði en hægt gengur að framfylgja þeim enda sjálfbærnihugtakið flókið og pólitískt, og notkun þess á reiki. Það er engu að síður mikilvægt þar sem það snýst um jöfnuð og ábyrga nýtingu hins náttúrulega umhverfis til framtíðar. Hér er leitað skýringa á því hvað geti valdið hægagangi við innleiðingu á stefnum um sjálfbæra landnotkun og matvælaframleiðslu, og hvort nýta megi skipulag til að ná betri árangri? Niðurstöður viðtala við einstaklinga úr fjórum hópum hagaðila bentu til samræmingarvanda í stjórnsýslu, takmarkaðs hæfis og getu stofnana, tregðu, skorts á hvötum til breytinga og áhrifa hagsmunaaðila sem vilja viðhalda ríkjandi kerfi. Í greininni er bent á nauðsyn þess að samræma stefnur um landnotkun og matvælaframleiðslu auk þess að styrkja þurfi skipulagsvaldhafa til að takast á við þetta viðfangsefni. Helstu tillögur um úrbætur eru þessar:

  • Hugtökin „sjálfbær landbúnaður“ og „sjálfbær matvælaframleiðsla“ verði skilgreind með tilliti til íslenskra aðstæðna;
  • Hæfi og geta hlutaðeigandi stofnana verði styrkt;
  • Skipulagsáætlanir verði nýttar markvissar til að samþætta stefnu um landnotkun og matvælaframleiðslu, og þær samræmdar hagrænum áætlunum;
  • Eftirfylgni og eftirlit með áætlunum verði bætt;
  • Valdatengsl í landbúnaðarframleiðslukerfinu verði kortlögð til að auðvelda sanngjarna dreifingu á gæðum og völdum.

Um höfund (biography)

  • Salvör Jónsdóttir

    Skipulagsfræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands

Niðurhal

Útgefið

22.06.2026

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 188

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.