Er heilsa metin með hlutfallslegum eða algildum hætti?

Höfundar

  • Agnar Hafliði Andrésson
  • Tinna Laufey Ásgeirsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2013.9.2.6

Lykilorð:

Heilsa, hlutfallsleg staða, lífsgæði.

Útdráttur

Fyrri rannsóknir benda til þess að fólki sé minna umhugað um hlutfallslega stöðu heilsu heldur en hlutfallslega stöðu annarra gæða. Heilsa er hins vegar margvíð og aldrei áður hefur verið rannsakað hverjir hlutfallslegir eiginleikar mismunandi vídda heilsu eru. Send var spurningarkönnun á nemendur Háskóla Íslands þar sem svarendur voru látnir velja á milli tvenns konar samfélagsástands: í öðru bjuggu þeir við betri heilsu en aðrir í samfélaginu, en í hinu bjuggu allir við betri heilsu, en þar voru svarendur við lakari heilsu en aðrir. Kannað var með tilgátuprófum hvort ólíkar víddir heilsu væru í mismiklum mæli metnar út frá hlutfallslegri stöðu einstaklings miðað við aðra í samfélaginu. Þá var samband milli lýðfræðilegra- og heilsufarslegra breyta við afstöðu til hlutfallslegrar stöðu mismunandi vídda heilsu metið með logit aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fæstir þættir heilsu hafa ólíka hlutfallslega eiginleika umfram aðra, en einungis líkamsþyngd og ungbarnadauði sýndu marktækt frábrugðna eiginleika. Þá virðist heilsa vera almennt talin mjög algild og kýs fólk síður hlutfallslega sterkari stöðu á kostnað algildrar heilsu.

Um höfund (biographies)

  • Agnar Hafliði Andrésson
    Hagfræðingur, læknanemi við Háskóla Íslands.
  • Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
    Hagfræðingur, lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

15.12.2013

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 131

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)