Aðgengi, sköpun og þátttaka barna: listahillan sem opnaði möguleika
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.1Lykilorð:
sköpun í leikskóla, lýðræðislegt nám, aðgengi að efniviði, þátttaka barna, stuðningur leikskólakennaraÚtdráttur
Markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um í þessari grein var að kanna reynslu barna af aðgengi að skapandi efniviði í einum leikskóla og af stuðningi leikskólakennara. Rannsóknin var gerð í leikskóla sem starfar í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og byggir á mikilvægi lýðræðislegra starfshátta og námsumhverfis sem veitir börnum tækifæri til að njóta sjálfræðis og hafa áhrif á eigið nám. Rannsóknin var starfendarannsókn á einni deild þar sem skapandi efniviður var gerður sýnilegur og aðgengilegur í hæð barna. Gagnaöflun byggðist á rannsóknardagbók, vettvangsathugunum og hópviðtölum. Niðurstöðurnar sýna að aðgengi og sýnileiki efniviðar dugir ekki eitt og sér til að virkja sköpunarkraft barna; stuðningur kennara og virkt samtal við börnin er lykilatriði. Áskoranir á borð við manneklu og atvik tengd tilraunakenndri notkun barna á málningu sýndu mikilvægi þess að skapa menningu innan deildarinnar sem styður sköpun. Rannsóknin varpar ljósi á það hvernig aðgengileg listahilla getur opnað möguleika á lýðræðislegu og skapandi leikskólastarfi.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Þóra Lilja Kristjánsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.