Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.6Lykilorð:
vinnustaðamenning, forysta í leikskólum, vellíðan kennara, samskipti í leikskólaÚtdráttur
Vellíðan starfsfólks og jákvæð vinnustaðamenning er talin vera forsenda fyrir faglegu starfi í leikskólum. Rannsóknir benda til aukins álags og streitu í kennarastarfinu þannig að mikilvægt er að skapa vinnuumhverfi sem styður bæði vellíðan starfsfólks og gæði starfsins. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig skólastjóri í leikskóla getur, í samstarfi við starfsfólk, stuðlað að mótun og þróun jákvæðrar og heilsueflandi vinnustaðamenningar. Rannsóknin er starfendarannsókn í einum leikskóla þar sem unnið var markvisst að þróun samskiptahátta, samstarfs og skipulags innan vinnustaðarins. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar er byggður á kenningum um vinnustaðamenningu og hlutverk stjórnenda í mótun hennar, meðal annars með því að búa til skýran ramma, stuðla að uppbyggilegum samskiptum og efla þátttöku starfsfólks í þróun starfsins. Niðurstöður benda til þess að sameiginleg ábyrgð starfsfólks á samskiptum, skýr og sýnileg forysta og skipulag sem styður samvinnu séu lykilþættir í þróun jákvæðrar vinnustaðamenningar. Rannsóknin sýnir jafnframt að markviss vinna með samskipti, samstarf og skipulag getur skapað bjargir í krefjandi starfsumhverfi og þannig stuðlað að aukinni starfsánægju í leikskólum.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Inga Birna Sigurðardóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.