Frásagnir leikskólakennaranema af þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegu leikskólastarfi

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.2

Lykilorð:

leikskólakennaranemar, inngilding, námsrými, fjölmenningarmenntun, faglegt samstarf

Útdráttur

Greinin fjallar um rannsókn þar sem markmiðið var að varpa ljósi á þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegum barna- og starfsmannahópum í leikskólastarfi út frá sjónarhóli kennaranema. Skapað var rými til faglegs samtals milli nema í vettvangsnámi á lokaári í leikskólakennaranámi, leiðsagnarkennara þeirra í leikskólum og rannsakenda í Háskóla Íslands. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka skilning á því hvernig nemar stuðluðu að faglegri þróun og hvaða áhrif það hefði á mótun inngildandi starfshátta í leikskólum. Í rannsókninni var byggt á hugmyndafræði um fjölmenningarmenntun þar sem tekið er mið af auðlindum barna og starfsfólks. Rannsóknargögnin voru upptökur af þrettán fundum. Helstu niðurstöður sýna að faglegt samstarf á deildum og stuðningur við samstarfsfólk ásamt fjölbreyttum skráningum skipti máli við að nálgast sjónarmið barna. Mikilvægt reyndist að nýta tungumálaauð í starfi en jafnframt að nota auðugt íslenskt mál. Greinin getur nýst við ígrundun starfsþróunar í vettvangsnámi leikskólakennaranema og mótun inngildandi starfshátta í leikskólum.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Hrönn Pálmadóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Hrönn Pálmadóttir Ph.D. (hropalm@hi.is) er fyrrverandi dósent í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af vettvangi og sem kennari í leikskólakennaranámi. Helstu áherslusvið hennar í rannsóknum eru tjáning og samskipti yngstu leikskólabarnanna í leik, hlutverk leikskólakennara og upphaf leikskólagöngu ungra barna. Hrönn hefur tekið þátt í bæði innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum um margvíslegar áskoranir í daglegu lífi barna í leikskólum.

  • Kristín Karlsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Kristín Karlsdóttir Ph.D. (krika@hi.is) er fyrrverandi dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún hefur kennt í leikskólakennaranámi um árabil og tekið þátt í erlendu og íslensku rannsóknarsamstarfi, m.a. tekið virkan þátt í starfi RannUng. Rannsóknir hennar tengjast menntunarfræðum ungra barna og snúast m.a. um leik barna og áhrifamátt þeirra, skráningar og mat og rými barna til náms í fjölmenningarlegu samfélagi.

  • Renata Emilsson Pesková, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Renata Emilsson Pesková Ph.D. (renata@hi.is) starfar sem dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir og kennsla Renötu eru á sviði menntunarfræðilegra málvísinda og snúast um inngildandi menntun í fjölbreyttum bekkjum, fjöltyngi, tungumálastefnur, móðurmálsnám og tungumálasjálfsmyndir í menntun.

  • Arna H. Jónsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Arna H. Jónsdóttir Ed.D. (arnahj@hi.is) er leikskólakennari og fyrrverandi dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að forystu og menntastjórnun en einnig að hlutverki leikskólastjóra og leikskólakennara, einkum deildarstjóra, og sjálfsmynd (e. identity) þeirra.

Niðurhal

Útgefið

2026-06-24