Frásagnir leikskólakennaranema af þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegu leikskólastarfi
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.2Lykilorð:
leikskólakennaranemar, inngilding, námsrými, fjölmenningarmenntun, faglegt samstarfÚtdráttur
Greinin fjallar um rannsókn þar sem markmiðið var að varpa ljósi á þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegum barna- og starfsmannahópum í leikskólastarfi út frá sjónarhóli kennaranema. Skapað var rými til faglegs samtals milli nema í vettvangsnámi á lokaári í leikskólakennaranámi, leiðsagnarkennara þeirra í leikskólum og rannsakenda í Háskóla Íslands. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka skilning á því hvernig nemar stuðluðu að faglegri þróun og hvaða áhrif það hefði á mótun inngildandi starfshátta í leikskólum. Í rannsókninni var byggt á hugmyndafræði um fjölmenningarmenntun þar sem tekið er mið af auðlindum barna og starfsfólks. Rannsóknargögnin voru upptökur af þrettán fundum. Helstu niðurstöður sýna að faglegt samstarf á deildum og stuðningur við samstarfsfólk ásamt fjölbreyttum skráningum skipti máli við að nálgast sjónarmið barna. Mikilvægt reyndist að nýta tungumálaauð í starfi en jafnframt að nota auðugt íslenskt mál. Greinin getur nýst við ígrundun starfsþróunar í vettvangsnámi leikskólakennaranema og mótun inngildandi starfshátta í leikskólum.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Hrönn Pálmadóttir, Kristín Karlsdóttir, Renata Emilsson Pesková, Arna H. Jónsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.