Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.6

Lykilorð:

vinnustaðamenning, forysta í leikskólum, vellíðan kennara, samskipti í leikskóla

Útdráttur

Vellíðan starfsfólks og jákvæð vinnustaðamenning er talin vera forsenda fyrir faglegu starfi í leikskólum. Rannsóknir benda til aukins álags og streitu í kennarastarfinu þannig að mikilvægt er að skapa vinnuumhverfi sem styður bæði vellíðan starfsfólks og gæði starfsins. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig skólastjóri í leikskóla getur, í samstarfi við starfsfólk, stuðlað að mótun og þróun jákvæðrar og heilsueflandi vinnustaðamenningar. Rannsóknin er starfendarannsókn í einum leikskóla þar sem unnið var markvisst að þróun samskiptahátta, samstarfs og skipulags innan vinnustaðarins. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar er byggður á kenningum um vinnustaðamenningu og hlutverk stjórnenda í mótun hennar, meðal annars með því að búa til skýran ramma, stuðla að uppbyggilegum samskiptum og efla þátttöku starfsfólks í þróun starfsins. Niðurstöður benda til þess að sameiginleg ábyrgð starfsfólks á samskiptum, skýr og sýnileg forysta og skipulag sem styður samvinnu séu lykilþættir í þróun jákvæðrar vinnustaðamenningar. Rannsóknin sýnir jafnframt að markviss vinna með samskipti, samstarf og skipulag getur skapað bjargir í krefjandi starfsumhverfi og þannig stuðlað að aukinni starfsánægju í leikskólum.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Inga Birna Sigurðardóttir

    Inga Birna Sigurðardóttir (ibs15@hi.is) er skólastjóri í leikskóla í Grafarvogi. Hún hefur starfað þar frá 2004 í fjölbreyttum hlutverkum, þar á meðal sem leiðbeinandi, leikskólaliði, deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri, og gegnt stöðu skólastjóra frá 2023. Árin 2017–2019 starfaði hún sem deildarstjóri í leikskólanum Bakka. Hún hefur lokið B.Ed.- og tveimur M.Ed.-prófum frá Háskóla Íslands. Greinin er byggð á meistaraverkefni hennar

  • Anna Magnea Hreinsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Anna Magnea Hreinsdóttir (amh@hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún var leikskólastjóri í mörg ár, leikskólafulltrúi og fræðslustjóri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og veitt skólum ráðgjöf. Rannsóknir hennar tengjast forystu og stjórnun, námskrárgerð og innra mati leikskóla með áherslu á lýðræðislega starfshætti. Þá hefur hún lagt áherslu á sjónarmið og þátttöku barna í rannsóknum sínum.

Niðurhal

Útgefið

2026-06-24